PrófkjörslífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Nú líður að prófkjöri og aldrei hef ég sem um þessar mundir átt jafn erfitt með að raða upp þeim lista sem skal á blað merkja á morgun. Margir nýjir aðilar með óljós áherslumál, fólk sem maður bara þekkir ekki, reynsluboltar sem sækjast eftir sætum sem maður vildi fremur ekki úthluta þeim og annað í þá áttina, nú hafði ég ekki tíma til að þræða skrifstofur frambjóðenda og var pínu að treysta á þjóðina í þeim efnum.. já þig... gæturu kannski eitthvað leiðbeint mér með þessi mál?

Pælingin er þessi:

Illugi Gunnarsson
Sigurður Kári Kristjánsson
Ásta Möller
Guðrún Inga Ingólfsdóttir
Erla Ósk Ásgerisdóttir
Guðlaugur Þór
Valdimar Agnar Valdimarsson
Sveinbjörn Brandsson
Birgir Ármannsson
Pétur Blöndal

Veit ekki er fólk kannski ekkert að taka heilu dagana í að stúdera þessa lista eða hvað?

kv.
PrófkjörsHanna

HÍ lífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Jóhanna er HR-ingur í HÍ aðlögunar ferlið var þó að mestu leiti mun auðveldara en HR ingurinn áætlaði. Ef maður reynir að líta ekki á HÍ sem einingu heldur aðeins hús með fullt af innstungum og fullt af fólki sem veit ekkert hvað næsti maður er að gera er þetta ekkert mál. Lífið hérna er pínu eins og á stórri lestarstöð, það eru allir að fara eitthvað, margir ekkert vissir hvert, en fólk stoppar stutt og er á hlaupum.

Í dag var þó mjög greinilegur munur á því sem ég átti að venjast í HR en var ég mætt hérna árla morguns í verkefnavinnu, en fljótlega fór að bregða fyrir hinum ýmsu kynjaverum, já það er jú öskudagur... en nei þú ert í Háskóla!!!

Annars er þetta að ganga fínt, er töluvert meira álag en ég hafði gert mér í hugarlund, skil ekki alveg hversu mikil vinna þetta nám getur verið. Lífið hefur einkennst af verkefnavinnu, prófum og lestri síðan önninn hófst, en bíð ég þess óðum að endurmenntunarnámið verði búið og þá getið þið farið að gera ráð fyrir mér á ölstofum landsins, hvort sem þú trúir því eða ekki þá mætti ég sko ekki í vísindaferðina sem var farið í.... og nei hefur ekkert með það að gera að farið var í Samfylkinguna.

Já fyrst að ég þurfti að nefna Samfylkingunna.... nei djók ekki orð um hana. En ég er enn full af þjóðastolti eftir Kastljós þáttinn í gær, það er langt síðan að ég hef fundið til stolts af því einu að vera Íslendingur og þá ef eittthvað er frekað skammast mín. Var þetta viðtal stór sögulegur viðburður og nú hefur maður von um það að fólk fari að haga sér í takt við þau lífsgildi sem hér eru norm og siðmenning verði höfð í hávegum. Skrifa ekki meir um það vil ekki að Jóhanna nafna mín loki blogginu mínu.

En komið gott, óska ykkur bara gleði í lífinu og ef þú kemur og tekur lagið skal ég gefa þér knús.. ég er í Odda stofu 101, eftir tímann má finna mig á HT.

bestu kveðjur

Jóhanna Dýrunn

PælingalífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Hey búin að vera að pæla rosalega mikið uppá síðkastið... hef sko nægan tíma til að hugsa, velta mér uppúr engu. Í dag var ég stödd með Rakel Lind í Ikea sem var náttla bara snild, við vorum svangar og gengum okkur að borða, þá kom upp brillíant pæling... hvað með að taka Ikeadate!!!!

Æi ég er single pía og fer á date svona mjög óreglulega (ekki alltaf á datei neitt) en ef að ég væri að fara á date þætti mér alveg í takt við tíðarandann að bjóða manni í mat í Ikea, fínn matur og lúxusverði í kreppunni.

En svona í alvöru er búin að vera að velta þessu mikið fyrir mér, ég náttla bíða aldrei neinum á date, en ef að mér væri boðið á Ikea date... myndi ég þá hugsa " Vá glataður gaur!!" eða "haha en sniðgur!" eða "vá geðveikt öruggur með sig!" eða " er ég bara ekki þess virði eða?"

Ég veit ekki hver viðbrögðin yrðu, en ég held að þetta sé klárlega málið, það er skemmtileg stemming og ágætismatur, svo er hægt að labba hing í Ikea og ef að hann er alltaf að skoða eitthvað ljótt þarf maður ekkert að hitta hann aftur.... eða bara kenna honum að meta alla fallegu hlutina...já pæling, allavega fannst ég þurfa að skella þessum pælingum inn, vonast til að heyra fljótlega Ikea date slúður sögur.

Jóhanna Dýrunn

2008 lífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Það var laust eftir hádegi þegar ég leit á eftir golfkúlu þjóta inn í himininn að ég gerði mér grein fyrir að það er komið nýtt ár 2008 er búið og flogið út á brautina eins og seinasta golfkúlann sem skotið var úr básnum þennan daginn.

Vá 2008 var viðburðaríkt ég varð 25 ára þarna strax í upphafi, óttaðist að ég væri að verða fullorðin, það kom ekki að sök, enn í dag get ég verslað föt í barnadeildum og hef ekki tekið á mig fullorðins mynd þó að tennurnar séu jú komnar.

Skóli, ræktin og djammið einkendu annað árið í röð, er orðin góð í þessu hef tamið mér þessa þætti og þó að djammið hafi ekki fengið mikinn kraft uppá síðkastið. Ræktin hefur verið annað heimili mitt 2008 og ég hugsa að ég flytji ekkert út á næstunni, aldrei að vita að maður skipti um aðsetur þar sem að breytingar urðu á þeim markaði eins og öðrum. Skólinn já Salóme snillingur plataði mig í Endurmenntun... aha tímabært... en það er búin að vera skemmtileg ferð þó að það hafi ekki alveg verið eins og við höfðum hugsað okkur. Ekki má gleyma Empora ævintýrinu sem var skemmtilegt og mjög lærdómsríkt.

Nú síðustu mánuðir 2008 voru erfiðir, mikið um reiði og skömm í samfélaginu, þannig var það líka á þessum bænum, kannski ekkert reið, þeir sem hafa séð mig reiða vita að það er ekki neitt til að skrifa um... heldur bara var maður hræddur og stressaður yfir öllu þessu... en ég hef hér með tekið ákvörðun um að ég er það ekki lengur, við erum íslendingar þetta reddast.

Ekki má gleyma gullmolanum, en svona í miðju hruni eignaðist ég lítinn frænda Baltasar Loga sem er svona líka flottur og kallinn getur sko fengið mann til að brosa í gegnum hvað sem er.

Framundan eru óvissutímar ég skráði mig í meistaranám í HR og HÍ er að vinna í örðum umsóknum, vona innst inni að draumastarfið hoppi uppúr þessum rökum og ég geti haldið áfram, annars hugsa ég að ég fari bara til óvinalandsins og leggi þar á mennt, en já óvissa það eru næstu vikur, ætti allt að verða komið á hreint áður en ég verð 26 ára.

Held að hádramatískum skrifum sé nú lokið að mestu, þakka ykkur öllum fyrir árið sem var að líða og stefnum að því að hafa 2009 frábært ár og lifa vel.

Knús & kossar

Jóhanna Dýrunn

HangsilífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Hafði ég hugsað mér að nefna þessa færslu letilífið en hafði það þá þegar verið skrifað og því er hér svo komið að ég skrifa hangslífið... vá hvað ég er mikill sófamatur í dag, er búin að vera heima að undanskildum bílferðum sem höfðu þann tilgang að afla mér fæðu...

Ég hef verið að lesa eins og brjálæðingur þar sem að ég tapaði mér í regnskógarbókabúð internetsins og pantaði fullt af bókum sem eru nú farnar að streyma inn um póstlúguna... mér til mikillar hamingju en hef ég ekki neitt gríðarlegt magn af aukatíma þannig að allar dauðarstundir... svona eins og rauðljós fara í það að lesa.. en ástæða þess að ég fór inná bókarbúðina var jú til að kaupa mér skólabækur.. haldiði að stelpan hafi ekki skráð sig í skóla, nú þegar það er ár liðið frá því að ég útskrifaðist úr HR fannst mér tímabært að brýna járnin og skella mér í endurmennt... þegar maður stefnir að því að verða skarpasta járnið í skúrnum þýðir ekkert að taka því rólega.

En rólega hvað er það... að vera í 100% starfi með 2 aukaverkefni í ræktinni alla daga ( nei Saló ég er ekki hætt, tók mér 3 vikna frí). En já rólega er bara ekki það sem hentar mér virðist alltaf þurfa að vera í mega stressi til að líða sem best... ekki það að mér hafi verið að leiðast, skemmti mér vel í vinnunni og elska ræktina.. er búin að vera að kynnast full af skemmtilegu fólki og á jú fullt af vinum sem þarf að heimsækja.. en þó er ég aldeilis ósatt með það að nokkrir hafa verið að fara hér hulduhöfði meðan þeir hafa dvalið hár á landi... segji ég burt með HULDU burt með hana...

Í gær fór ég til Keflavíkur svo fyndið hvað ég set það fyrir mig að fara þangað... þetta er nú bara eins og að keyra í vinnuna á morgnanna liggur við... en Hildur var með matarboð fyrir okkur stelpurnar ekkert lítið æðislegt læri og allt sko katröflurnar hans Eiðs voru líka hittari...en ég hef núna sett það á stefnu að fara annanhvern miðvikudag til KEFcity til að hitta ömmu mína og Hildi og strákana, sjáum hvernig það plan gengur..ekki eins og ég sé að tala um að fara til tunglsins..

Það er eitt sem er alveg að drepa mig og það er ekki það að ég er ekki búin að fá neinn til að bora hillurnar í vegginn fyrir mig... því að ég á jú ekki neinn mann en hef ég fengið sjálfboðaliða og held ég að hillurnar séu á leiðinni á vegginn.. en já það sem að er að drepa mig eru pælingar um vörumerki það er N1 sem eru svona bensínþjónustucenter.. en nöfn, vörumerki og umbúðir eru hugsaðar til þess að greina vöruna frá öðrum í samaflokki, samkeppninni... en N1 = enneinn = enn ein bensínstöðin = eins og allar hinar. Hver ákvað að þetta væri góð hugmynd.. ég er bara ekki að ná þessu djóki og það er deginum ljósara að það er ekkert verið að fíflast eða ef svo orðið ansi langt djók. Veit ekki hver stendur á bak við þetta en hefði ég gaman að því að fá þetta skýrt... ég veit vel að N1 var geymflaug en það var líka spútnik og ekki hafa geimflaugafyrirtæki haft sérlega háaviðskiptavild... æi allavega finnst mér þetta eitthvað pínu glatað.. enneinn eitthvað er klárlegasta lélegast branding sem hægt er að fara af stað með... næst kemur matvöruverlsunin önnur... getur haft vörumerkið 2.

Jæja best að koma sér í menningarham og skella sér á menningarnót, var komin með samviskubit yfir því að blogga ekki í næstum 2 mánuði og samt voru heimsóknir tíðar ... þannig að hér hafiði þetta... spurning hvort að ég reyni að blogga aftur á næstunni...

ástarkveðja

RugllífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Ég verð að segja ykkur að þetta er bara ekki nógu gott... bara rugl sko... ekkert er nógu gott fyrir ykkur... fyrst voru færslurnar mínar jafn langar og bilbían og sumir létu í sér heyra að þetta væri þeim bara ofviði... og nú stytti ég það niður í málsháttarlengd.. og nei nei .. það bara tekur því varla að byrja á því.. Ég ætla núna að gera tilraun að milli löngu bloggi sjáum hvernig það tekst til.

Já og síðan hvenær hef ég hlustað svona mikið á gagnrýni.. þetta er sko bara blogg... enginn stórútgáfa.. er ekkert á launum sko. En ég hef eitthvað óþarflega mikið verið að hlusta á fólk í lífinu uppá síðkastið.. hefur alveg sett mig út af laginu og er búin að vera frekar lost... ég er að pæla í að hætta að hlusta og fara bara aftur í að vera litla hamingjusama ég og lifa sátt með það... ef einhver ætlar að nöldra yfir því þá skal ég bara brosa meira... og  vera óþolandi hress.

Vá haha leiðinlega pían... haha.. er búin að vera lost... það má alveg sjást pínu á þessum skrifum sem jú eiga það til að endurspegla líf mitt dag frá degi.

Í seinustu viku lögðum við Saló upp í leiðangur.. eitt stk hestamannamót.. áður en við lögðum af stað þurftum við jú að undirbúa okkur.. vorum í einhverjum galsa alla vikunna og ekki hjálpaði að þurfa að kaupa 500 batterí og sjá sköttlóttann mann bardúsa með hárblásara... mótið var svo ekki lítil snild...fólk er eitthvað að tala um að það finni á sér við að skoða myndirnar ...  ég er enþá að hrista hausinn yfir ruglinu þarna og alveg farin að sakna áhangendahópsins.... já nei það voru sko ekki fáránlega heitir gaurar... nei nei ... svona 10 stk af litlum skvísum sem að eltu mann út um allt og sögðu öllum sem við hittum að við værum sko bestu vinkonur... æi svona gerpi eru svo mikil snild erfitt að sakna þeirra ekki.

Það var svo gaman á hestamannamótinu að ég átti ekki mikla gleði eftir til að tækla komandi daga en finn að það er allt að smella í gott, er í miklum pælingum með komandi helgar... er enþá planlaus um Þjóðhátíðarhelgina veit ekki hvort að ég get farið á eyjuna án þess að vera með haugana mína með... þarf að fara að skella á þá línu og heyra hvað planið er.. hvort maður þarf að taka hátíðina á Tene eða hvað planið er... væri nú fínt að fara að taka púlsin á liðinu bara..

Ég veit ekki hvað málið er fær fólk bara nóg af ruglinu og fer eða hvað... þeir sem hafa verið mér næst í lífinu hafa flestir bara flutt til útlanda... fyrir utan það að allir eru í sumarfríi núna er Svala flutt i sveit... alla leið á Akureyri... ég fæ reglulega að heyra fréttir af beljum, hestum og öðrum verum sem hún umgengst þarna en hún er alveg að tapa sér í kokkanáminu.. til að geta alminnilega eldað handa mér... skelli hér með inn einni mynd af henni sætu



Gott í bili

SleiklífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Æi komon nennir fólk aðeins að hemja sig í ástarlotum á almannafæri ég er alveg komin með gubbuna á fólki í sleik.. þetta er ekki huggulegur leikur sko... og meira bara svona heimaleikur.. það er allavega þannig í prinsessuríkinnu mínu.. og þar er ekki ætlast til þess að fólk sé í sleik í sundi og hvað þá nýjasta trendið í ræktinni.. komon reyniði að gera þetta heima hjá ykkur

takk

VerðstríðslífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Já sko... ég er búin að fá alveg hátt í 30 stk af tölvupóstum um þetta verðstríð... þannig að bara gott með þig.. ekki senda mér meira af því... af því annars klikkar stærðfræðin í þessu slideshowi alveg rosalega... en já ég tók bensín á egó í dag.... kostaði alveg slatta .. eða svona svipað lítraverð og er á Pepsi Max sem er hin grunnvökvinn sem ég þarf til að geta lifað í nútímasamfélagi.

Já nú er það á hreinu..

ÆvintýralífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Það er lítill ævintýrapúki í mér þessa dagana... hann kemur alltaf sterkur til leiks á sumrin og er margelfdur eftir að liggja í tímabundnum dvala... sem hann læðist þó út úr endrum sem eins... en hann er sko sannarlega viðverandi þessa dagana... ég er að prakkarast svo mikið að það hálfa væri nóg sko... svo hjálpar það sko ekki að það virðast allir vita hvað er auðvelta að plata mig í einhver kjánalæt... en það er kannski ekkert nýtt.. ég er svo alvarlega pía eða þannig.. ævintýri vikunar var þegar ágæt ónefnd ung dama sem að sannfærði mig um að það væri rosa góð hugmynd að kíkja upp í einhvern sumarbústað uppí úthlið að hitta einhverja gaura... og við erum ekkert að tala um að kíkja eitthvað svona um 6 leitið eða eitthvað.. nei nei bara eftir kickbox þannig að við vorum að renna úr bænum svona um hálf 10 ... alveg snar...

Við enduðum 4 skutlur í bíltúr á leið út fyrir endimörk alheimsins (Úthlíð) að fara að plögga einhvern gaur ... hvað er það.. haha.. getiði fundið eitthvað lélegra wingman en mig... ég er alltof mikill bjáni í svoleiðis... finnst vandræðalegt fólk líka pínu fyndið .. og afhverju ætti ég þá eitthvað að hjálpa til með að gera fólk minna kjánalegt... veit ekki.. og já ég er klárlega pían sem þú þarft með í lið ef þú ætlar að finna þér kærasta... hahaha.. af því að ég er rosa inní svoleiðis pælingum..og sko fyrir utan það hver bara geriri svona... þetta er eins og að kaupa sér sko en geta ekki notað þá af því að þú ert alltaf að fá lánaða skó hjá öðrum... (klárlega lína helgarinnar) en já til að forðast furðulegheitin var bara ákveðið að fá sér í glös og ná þessu þannig fram af ísjakanum

Við skulum alveg taka það fram að það var þriðjudagskvöld... en ævintýrafílingur í liðinu... fengum okkur meira að segja snakk með dífu og það var alveg klárlega ekki nammi dagur.. en sko planið var alveg klárlega bara að kíkja aðeins við ... hoppa í einn pott og rúlla svo heim.. jjjjááááá ég er pían sem að fer eitthvað bara til að kæða mig úr fötunum og aftur í þau og svo heim... held nú síður en svo það verður nú líka að dansa... og viti menn það var sko dansað.. eins og enginn væri morgundagurinn.. reyndar var ég ein að dansa mest allan tímann en það gerist nú alveg... en dansmove kvöldsins átti klárlega bústaðarstjórinn... sem tók splittstökk og svanavatnsmove við Coldplay ef að minnið er að tækla þetta... Allavega nóg um ruglið... æi það er bara alveg á hreinu að ég ætla að lifa núna... ekkert bara seinna eittthvað... kemur ekki til greina að vera með eftirsjá yfir framkvæmdarleysi... gerum bara hlutina og gerum þá núna... újeee... ( vá geðveikt að missa það í áróðursræðu haha)
Allavega ruglið endaði svona seinni partinn í dag .. þegar við vorum allar komnar með sæmilega þykkt blóðflæði og allar að koma til... en svona er þetta bara..

Já helgin.. lína helgarinnar var komin.. skil ekki enþá þetta með gift fólk sem er að fíflast í fólki... af hverju ertu að gifta þig ef þú ætlar ekkert að lifa samkvæmt því... æi ég skil þennan pakka ekki alveg.. skil ekki einu sinni afhverju er svona hippogkúl að gifta sig.. getur fólk ekki bara búið saman og kannski bara rætt málin.. haha.. en allt þetta drama og ves .. veit ekki... er ekki alveg að sjá pointið með þessu... og hver segir að manneskjan sé einhver para vera... það er vera sem velur sér lífstíðarmaka... það eru sko fullt af dýrum sem virka bara alls ekkert þannig... bara skipta þegar það er komin tími á það... er það ekki eitthvað pínu minna ves... og pæliði í því ef að það væri bara hluti af okkar samfélagslegu normum að fólk skipti um maka kannski á 3- 5 - 7 ára fresti... það er ekkert hægt að segja... uhhh nei það væri svo vont fyrir börnin... þau myndu ekki þekkja neitt annað.. þannig að það væri bara ekkert að skaða þau.. og þá myndu kannski kellingarnar nöldra minna... af því að þær hefðu meira til að spá í .. eins og hvar þær ætli að finna næsta mann...
já pæling... þurfum við endilega að lifa í þessu samfélagsformi... eitthvað voða jesú partý í gangi hérna alltaf skýrn - ferming- gifting - jarðaför... ég veit ekki... verður einhvertíman til íslenskt samfélag sem er ekki gegnlitað af jesúmanninum.. veit ekki..

Hahah ég ætlaði að fara að skrifa hvað var gert um helgina og lendi í því að hella hérna út hálfum lítra af skoðunum mínum á kristinlegu samfélagi...gott að athyglin er á réttum stað.. en frásögnin byrjaði þar sem að giftur maður veitti mér óhóflega athygli um helgina... og bara já .. ekkert meira en það .. vinur hans sagði mér að hann væri giftur og sagði mér að passa mig á honum.. haha.. sem og ég gerði.. heyrðu já viti menn á föstudaginn fór mín bara í fimmtugs afmæli.. svaka hress... mætti á svæðið .. sem var Reykjanessvæðið sko og hlýddi á ræðuhöld og horfði á skemmtiatriði og snæddi dýrindis mat... en aðal skemmi atriðið var klárlega þegar fólkið byrjaði að dansa... ég elska að sjá svona fullorðið fólk dansa... það er alltaf pínu eins og þau séu að gera fugladansinn.. eitthvað blakavængjum og svo er eitthvað áhugavert move með fótunum sem ég er enn að mastera... heyrðu já dans.. so you think you can dance... ég er að misssa það ... eruði að grínast.. svo gaman að horfa á þetta... mæli með þvi Glottandi

haha valmyndinn fyrir broskallana heita tilfinningatákn.. er ég þá orðin tilfinningavera núna ? sko klárlega alltaf að vinna í því...

Heyrðu laugardagurinn fór allt öðruvísi en planað var ég var uppí HR allan daginn að vinna í AMP svaka flottu nýju námi sem er í boði þar... um kvöldið fórum við tryllurnar á Vegó surprice .... við vorum allar eitthvað rosa rólegar í því stelpurnar búnar að hlaupa eins og vindurinn í kvennahlaupinni og ég var vöknuð fyrir allar aldir til að fara að vinna...þannig að það var farið frekar snemma heim... en kvöldið var gott.. og stemmingin svaka fín

Já vá þetta blogg verður alveg endalaust... ef þú ert enþá að lesa verðuru eigilega að kvitta því að núna er fyrri hálfleikur..ætti eigilega bara að byrja á nýrri færslu hér í staðin fyrir að setja allt dótið sem er í hausnum á mér inn hér fyrir aftan.. ótrúlegt hvað kemur gerist allt hratt í svona haus.. ég bara hef ekki undan og verð einhvernvegin að koma ruglinu frá mér sko... já humm.. halda áfram... eða byrja aftur eftir 2 daga að skrifa um framkvæmdalífið... svo liggur mér einnig mikið á að tjá mig um það sem er að gerast í íslenskum auglýsingum.. úfff... ég held að ég verði bara að halda áfram á föstudaginn.. úff og þá á mig líka eftir að langa að skrifa um Bluntarann.. hann var sko æði seinast þegar ég fór.. geri ekki minni væntingar í þetta skipti.. uhh jú reyndar.. haha .. en það má...

ég ætla að prófa að vista og sjá hvort að þetta er búið... ef að það má skrifa meir.. þá stroka ég þessa línu bara út.. annars ekki

kv
JóDýr

StelpulífiðJóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Vá ég er orðin svo mikil stelpa að það hálfa væri nóg... spurning hvort að þetta er komið til að vera eða hvað.. maður bara veit ekki... við stelpurnar fórum eldhressar í ræktina kl 7 í morgun og svo aftur seinni partinn vá við erum svo mikið teymi að það hálfa væri nóg... Salóme fær sko að heyra vælið í mér á morgun eftir að hafa djöflað mér út í einhverjum ógeðis læræfingum seinni partinn... vertu bara tilbúin elskan

Ég fór í klippingu í dag... hárið er bara alveg eins og það var seinasta... haha... rosa nýjunga gjörn eða þannig... bara sama og venjulega takk... nei nei þetta er nú bara í annað skiptið ekki neitt svaka mál...

Ég borðaði sko 6 sinnum í dag... er ótrúlega stolt af mér... þó að mér finnist það pínu klikk... en vá ég borðaði kvöldmat eins og gamall sjóari sko... ég vissi ekki að líkaminn minn gæti geymt allt þetta í einu... en ég varð ekki einu sinni södd... haha... ég er klárlega í ruglinu.. haha

Haldiði að mín hafi ekki bara komið heim eftir æfingu skellt sér í kjól og hæla og farið í bíó með stelpunum... svaka stelpuferð Sex and the city... hvað er fólk að spá ... þetta er sko ekkert hollt fyrir þær... þær eru mega tilfinningaverur... það er langt síðan það hafa verið svona margar grenjandi stelpur inní sama herberginu... mér finnst bara komin tími til að hætta að búa til svona rugl... ekki eins og stelpur búi ekki til nóg drama sjálfar... að þær þurfi að horfa á þetta líka... vitið hvað það eru margar stelpur að senda glötuðum fyrverandi kærustum sms núna... pælið í því sko... horror... eins og greyið mennirnir séu ekki búnir að þjást nóg...
En já mér fannst þetta alveg skemmtileg mynd... velti fyrir mér hvort að ég ætli einhvertíman að verða tilbúin að búa með manni aftur... gifta mig ... eiga börn.... sjáiði hættulegt að búa til svona myndir... en gott að ég fór ekki að gráta... en kannski er það eitthvað merki um það að ég sé ekki í nógu miklu tilfinningalegu ójafnvægi ... eða að ég sé harðbrjósta... er allavega með drullu harða brjóstvöðva... róleg á þeim sko...
Ég hugsa samt að ég verði alveg búin að jafna mig í fyrramálið... þá tekur klárlega annað drama við... svona til að toppa stelpuruglið þá er fitumæling í fyrramálið langt fyrir hádegi... og við fengum okkur popp í bíó.. gott move... uhh nei

Já Saló alveg pæling að gista bara allar hjá þér... líka nóg pláss hér fyrir þig.. .meira en velkomin sko... híhí.. en Svala er farin að skoða íbúðir fyrir okkur... allar þrjár.. hún er að senda okkur í ruglið... það er á hreinu

Á morgun skal ekki rigna.. ég er svo spennt að hafa þurrt seinni partinn á morgun þegar við verðum að massa línuskautanámskeiðið .. eins gott að massa það.. spurði kennarann og hann sagði að rasshlífin yrði ekki nauðsynleg ef maður hlustaði bara á kennarann... þið fáið enn efa fá update á hvernig það þróast... er alvarlega að pæla í að taka með mér púða hahaha... á sko enga rasshlíf.. hver gengur með svoleiðis á sér?

Sko það var eitthvað sem ég ætlaði rosa mikið að skrifa um... en ég er orðin alveg lost... man ekki neitt stundinni lengur ... dagurinn er orðin svo langur, þegar maður vaknar svona snemma... er samt alveg að standa mig fínt í að fara snemma að sofa.. sem ég sá ekki gerast..

En þar sem að sambýliskona mín er farin að nudda á sér augun nú þegar við sitjum í náttfötunum hér á rúminu held ég að það sé tími til að stefna á draumalandið...

Kveðja
Jójó

Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir
  • Netfang: johannad1@hotmail.com
  • Símanúmer: 8610307

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...